Persónuverndarlýsing nikon europe
Í þessari persónuverndarlýsingu útskýrum við hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar þínar. Þessi persónuverndarlýsing gildir um allar persónuupplýsingar sem við söfnum um þig þegar þú pantar, kaupir eða notar vörur og þjónustu okkar, heimsækir vefsvæði okkar, notar þjónustuver okkar eða átt önnur samskipti við Nikon.
Nikon virðir friðhelgi einkalífsins og viðurkennir að vinnsla persónuupplýsinga á lögmætan og réttan hátt sé mikilvægur hluti af samfélagslegri ábyrgð og lýsir því yfir að það muni leitast við að vernda persónuupplýsingar. Þessi persónuverndarlýsing er hluti af persónuverndaryfirlýsingu Nikon Group. Hún gildir um þig (héðan í frá „þú“, „þig“ o.s.frv.), hvort sem þú ert tilvonandi, núverandi eða fyrrverandi viðskiptavinur og/eða birgir, og um notkun þína á vörum og þjónustu okkar, vefsvæðum okkar, eða um önnur viðskipti þín við Nikon Europe BV. Í þessari persónuverndarlýsingu munum við útskýra hvernig við vinnum persónuupplýsingar þínar. Þess vegna hvetjum við þig til að lesa þessa lýsingu vandlega.