D3100

D3100-vélin er ótrúlega auðveld í notkun. Góð leið fyrir hverja fjölskyldu til að ná fallegum myndum. Hvort sem augnablikið kallar á myndatöku af fjölskyldunni eða svipmynd af börnum að leik geta allir lært að taka glæsilegar myndir á augabragði með leiðbeinandi stillingu (Guide Mode). Með D-Movie geturðu tekið upp myndskeið í fullri háskerpu og fangað augnablikið í hámarksgæðum dag sem nótt. Hin háþróaða EXPEED 2 myndvinnsluvél Nikon hámarkar frammistöðu 14,2 megapixla CMOS-myndflögunnar og útkoman er frábærlega skýrar myndir með líflegum litum. D3100 er ótrúlega létt af SLR-myndavél að vera og er einföld leið til að taka stórkostlegar myndir af fjölskyldunni hvar sem er.

 

    14,2 megapixla CMOS-myndflaga á DX-sniði

    EXPEED 2: Háþróuð myndvinnsluvél Nikon

    Mikið ljósnæmi upp að ISO (100-3200) - hægt að auka í 12800

    Leiðbeinandi stilling: snjöll aðstoð í myndavélinni

    D-hreyfimynd: háskerpu (1920 x 1080) hreyfimyndir

 

    14,2 megapixla CMOS-myndflaga með DX-sniði skilar líflegum myndum með skýrum litum, minni hávaða og mjúkum tónabreytingum.

    EXPEED 2 myndvinnsluvél býður upp á betri hreyfimyndatöku, mikið ljósnæmi og hámarks myndgæði.

    Mikið ljósnæmi upp að ISO (100-3200) - hægt að auka í 12800: Með sjálfvirka ISO-stillingu og hægt að auka upp í ISO 12800 með Hi2 stillingunni. Gerir meiri lokarahraða mögulegan, sem minnkar hættu á að myndir af myndefni á hreyfingu eða í litlu ljósi verði óskýrar.

    Leiðbeinandi stilling: einföld og fljótvirk hjálparstilling í vélinni. Spyr þig um myndina sem þú ætlar að taka og velur sjálfkrafa stillingar til að útkoman verði sem best. Dæmi um myndir birtast á skjánum til að sýna þér hvernig myndin þín breytist ef þú beitir viðkomandi stillingu.

    D-hreyfimyndir – í háskerpu (1920 x 1080): Taktu upp falleg myndskeið í háskerpu með hljóði. Stór myndflaga og mikið ISO-næmi færa myndgæðin í hæsta flokk. Hægt er að nota NIKKOR-linsur til að ná fram kvikmyndaáhrifum og einnig klippa þau og breyta í myndavélinni með því að eyða atriðum eða vista ákveðna ramma sem ljósmyndir.

    Forskoðun með sjálfvirkri umhverfisstillingu: Gerir myndatöku með LCD-skjánum auðvelda. Sjálfvirk umhverfisstilling velur bestu stillinguna fyrir umhverfið og myndefnið og stöðugur sjálfvirkur fókus (AF-F) heldur myndefninu í fókus án þess að þurfa að ýta á afsmellarann.

    Stór 7,5 cm LCD-skjár með hárri upplausn gerir það auðvelt að skoða helstu upplýsingar um myndavélina og breyta myndum og hreyfimyndum.

    Skarpt 11-punkta sjálfvirkt fókuskerfi býður upp á hraðan og nákvæman sjálfvirkan fókus yfir allan rammann. Fjórar AF-svæðisstillingar, þar á meðal 3D-eltifókus AF, skila skörpum niðurstöðum hvort sem myndefnið er utan miðju, á hraðri hreyfingu eða hreyfir sig jafnvel á alveg ófyrirsjáanlegan hátt.

    Active D-Lighting varðveitir sjálfkrafa smáatriði á lýstum flötum og skyggðum og býr til ótrúlegar myndir með náttúrulegum birtuskilum.

    MeðPicture Control er hægt að stilla útlit og stemningu mynda áður en þær eru teknar. Sex stillingar eru í boði: Venjuleg, lífleg, hlutlaus, einlit, andlitsmynd og landslagsmynd.

    Fjölmargar breytingaraðgerðir í myndavélinni leyfa þér að breyta og bæta myndir og myndskeið í myndavélinni. Býður upp á aðferðir eins og „Red-Eye Correction“ (rauð augu lagfærð) og „Quick Retouch“ (fljótlega lagfæringu), auk fjölda síuáhrifa.

    Tvöfalt innbyggt rykhreinsikerfi Hreinsunarkerfi á myndflögu og lofthreinsikerfi varna því að ryk komist að myndflögunni og tryggja skýrar og blettalausar myndir.

    Létt og frábærlega vel hönnuð myndavél: Öruggt grip gerir vélina auðvelda í meðförum. Stýringar fyrir mikið notaðar aðgerðir eins og Live View, D-Movie og opnun lokara gera myndavélina afbragðsgóða í notkun.

    Fæst svört og rauð. Framboð og dreifing er breytileg á milli landa.

     
  •  
TegundStafræn spegilmyndavél
LinsufestingNikon F-festing (með AF-snertum)
Skilvirkt sjónsviðU.þ.b. 1,5x brennivídd linsu (Nikon DX-snið)
Myndflaga23,1 x 15,4 mm CMOS-flaga
Virkir pixlar14,2 milljónir pixla
Heildarfjöldi pixla14,8 milljónir pixla
RykhreinsikerfiHreinsun á myndflögu, safnar upplýsingum um Image Dust Off (Capture NX 2 viðbótarhugbúnaður nauðsynlegur)
Myndstærð (pixlar)4.608 x 3.072 (L); 3.456 × 2.304 (M); 2.304 × 1.536 (S)
SkráarsniðNEF (þjappað RAW); JPEG: Samhæft við JPEG-grunnlínu með fínni (u.þ.b. 1 : 4), venjulegri (u.þ.b. 1 : 8), eða grunn- (u.þ.b. 1 : 16) þjöppun; samtímis myndataka þjappaðra RAW og JPEG gæðamynda möguleg
MiðillSD (Secure Digital), SDHC, SDXC og Eye-Fi minniskort
MyndvinnslustýringarkerfiHægt er að velja venjulegt, hlutlaust, líflegt, einlitt, landslagsmynd eða andlitsmynd; hægt er að breyta valinni myndvinnslustýringu
ViewfinderLeitari með fimmstrendum spegli í spegilmyndavélar
Umfang rammaU.þ.b. 95% lárétt og 95% lóðrétt
StækkunU.þ.b. 0,8× (50 mm f/1.4 linsu á óendanleika, -1,0 m-1)
Augnstaða18 mm (-1,0 m-1)
Stilling ljósbrotseiningar-1,7 til +0,5 m-1
FókusskjárMattur BriteView skjár af gerð B Mark VII
SpegillHröð lokun
Ljósop linsuRafstýrt með tafarlausri lokun
Samhæfar linsurAF-S eða AF-I NIKKOR: Allar aðgerðir studdar. Tegund G eða D AF NIKKOR án innbyggðs mótors fyrir sjálfvirkan fókus: Allar aðgerðir studdar nema sjálfvirkur fókus. Aðrar AF NIKKOR án innbyggðs mótors fyrir sjálfvirkan fókus: Allar aðgerðir studdar, nema sjálfvirkur fókus og 3D lita fylkisljósmæling II. IX NIKKOR og F3AF: Ekki studd. PC-linsur af D-gerð: Allar aðgerðir studdar nema sjálfvirkur fókus og ákveðnar tökustillingar. AI-P NIKKOR: Allar aðgerðir studdar, nema sjálfvirkur fókus og 3D lita fylkisljósmæling II. Aðrar gerðir en CPU: Sjálfvirkur fókus ekki studdur. Er hægt að nota í lýsingarstillingu M en ljósmælir virkar ekki. Hægt er að nota rafrænan lengdarmæli ef hámarksljósop linsu er f/5,6 eða hraðar.
Tegund lokaraRafstýrður lóðréttur brenniflatarlokari
Lokarahraði1/4000 til 30 sek. í skrefunum 1/3 EV, „bulb“
Hraði samstillingar á flassiX=1/200 sek.; samstillist við flass á hraðanum 1/200 sek. eða hægar
TökustillingEinn rammi, raðmyndataka, sjálftakari eða hljóðlátur afsmellari
TökuhraðiAllt að 3 r/sek. (handvirkur fókus, stilling M eða S, lokarahraði 1/250 sek. eða hraðar og aðrar stillingar upprunalegar)
Sjálftakari2 sek., 10 sek.
LjósmælingTTL-ljósmæling með 420 pixla RGB-flögu
LjósmælingaraðferðFylki: 3D lita fylkisljósmæling II (linsur af G- og D-gerð); lita fylkismæling II (aðrar CPU-linsur); miðjusækin: 75% sækni í 8 mm hring í miðjum rammanum; Punktur: Mælir 3,5 mm hring (um 2,5% af rammanum) um valinn fókuspunkt
Drægi (ISO 100, f/1,4 linsa, 20 °C)Fylkismæling eða miðjusækin mæling: 0 til 20EV; punktmæling: 2 til 20 EV
Tengi fyrir ljósmæliCPU
StillingSjálfvirkar stillingar (sjálfvirk, sjálfvirk (slökkt á flassi); umhverfisstillingar (andlitsmynd, landslagsmynd, barn, íþróttir, nærmynd, næturmynd); sjálfvirkt kerfi, stillanleg (P); sjálfvirkur lokaraforgangur (S); sjálfvirkur ljósopsforgangur (A); handvirk (M)
Lýsingaruppbót-5 til +5 EV í þrepum upp á 1/3 EV
LýsingarlæsingLýsing læst á ákveðnu gildi með AE-L/AF-L hnappinum
ISO-ljósnæmi (æskilegur lýsingarstuðull)ISO 100 til 3200 í þrepum upp á 1 EV; einnig hægt að stilla á u.þ.b. 2 EV yfir ISO 3200 (samsvarar ISO 12800); sjálfvirk stjórnun ISO-ljósnæmis er tiltæk
Virk D-lýsingHægt er að velja kveikt eða slökkt
Sjálfvirkur fókusNikon Multi-CAM 1000 flaga fyrir sjálfvirkan fókus með TTL-fasagreiningu, 11 fókuspunktum (þar á meðal einum krossskynjara) og AF-aðstoðarljósi (drægi u.þ.b. 0,5–3 m)
Skynjunarsvið-1 til +19 EV (ISO 100 við 20°C)
Stýribúnaður linsuSjálfvirkur fókus(AF): Stýrður AF fyrir staka mynd (AF-S); samfelldur stýrður AF; sjálfvirkt val á AF-S/AF-C (AF-A); eltifókus sem verður virkur sjálfkrafa eftir stöðu myndefnis. Handvirkur fókus (MF): Hægt er að nota rafrænan lengdarmæli
AF-svæðisstillingEins punkts AF, AF með kvikum svæðum, sjálfvirk AF-svæðisstilling, 3D-eltifókus (11 punkta)
FókuslæsingHægt er að læsa fókus með því að ýta afsmellaranum hálfa leið niður (stýrður AF fyrir staka mynd) eða ýta á hnappinn AE-L/AF-L
Innbyggt flassStyrkleikatala um það bil 12/39, 13/43 með handvirku flassi (m, ISO 100, 20°C); sjálfvirkt, andlitsmynd, barn, nærmynd, næturmynd: Sjálfvirkt flass sem sprettur sjálfkrafa upp; P, S, A, M: Hnappur til að hleypa flassinu upp
Stjórnun á flassiTTL: i-TTL jafnað fylliflass og hefðbundið i-TTL fylliflass fyrir stafrænar spegilmyndavélar með 420 pixla RGB-flögu. i-TTL jafnað fylliflass er í boði með innbyggðu flassi og SB-900, SB-800, SB-600 eða SB-400 þegar fylki eða miðjusækin mæling er valin. Venjulegt i-TTL er í boði með innbyggðu flassi og SB-900, SB-800, SB-600 eða SB-400 þegar punktmæling er valin (flassstillingu er hægt að stilla með flassstýringum með SB-900, SB-800 og SB-600). Sjálfvirkt ljósop: Fæst með SB-900/SB-800 og CPU-linsu. Sjálfvirkt án TTL: Meðal studdra flasstegunda eru SB-900, SB-800, SB-80DX, SB-28DX, SB-28, SB-27 og SB-22S. Handvirkt flass með fjarlægð í forgangi: Fæst með SB-900 og SB-800
Sjónarhorn rammaNóg til að lýsa sjónsviðsmynd 18 mm linsu. Kantar myndanna geta verið dekkri eftir aðstæðum, svo sem linsunni og stillingu ljósops.
FlassstillingSjálfvirk, andlitsmynd, barn, nærmynd: Sjálfvirk, sjálfvirk og rauð augu löguð, slökkt í boði með innbyggðu flassi; fylliflass og rauð augu löguð fást með aukaflassbúnaði. Andlitsmynd um nótt: Sjálfvirk hæg samstilling, sjálfvirk hæg samstilling með lagfæringu á rauðum augum, slökkt í boði með innbyggðu flassi; hæg samstilling og hæg samstilling með lagfæringu á rauðum augum í boði með aukaflassbúnaði. Landslag, íþróttir: Fylliflass og lagfæring á rauðum augum fást með valfrjálsum flassbúnaði. P, A: Fylliflass, hæg samstilling við aftara lokaratjald, hæg samstilling, hæg samstilling með lagfæringu á rauðum augum, rauð augu löguð. S, M: Fylliflass, samstilling við aftara lokaratjald, rauð augu löguð
Flassuppbót-3 til +1 EV í þrepum upp á 1/3 EV
FlassvísirLýsir þegar innbyggða flassið eða aukaflassbúnaður, t.d. SB-900, SB-800, SB-600, SB-400, SB-80DX, SB-28DX eða SB-50DX, eru fullhlaðin; blikkar í um 3 sekúndur þegar flassið hefur skotið á fullum styrk
Festing fyrir aukabúnaðISO 518 tengiskór með samstillingar- og gagnatengjum og öryggislás
SamstillingartengiAS-15 millistykki fyrir samstillingartengi (fáanlegt sér)
CLS-ljósblöndunarkerfið frá NikonÞráðlaus flassbúnaður studdur af SB-900, SB-800 eða SU-800 sem stýriflass. Sending litaupplýsinga fyrir flass studd með innbyggða flassinu og öllum flassbúnaði sem er samhæfur CLS
HvítjöfnunSjálfvirk (TTL-hvítjöfnun með aðalmyndflögu og 420 pixla RGB-flögu); ljósapera, flúrljós (7 gerðir), beint sólarljós, flass, skýjað, skuggi, handvirk forstilling, allt nema handvirk forstilling með fínstillingu.
Live View - stýribúnaður linsuSjálfvirkur fókus (AF): Stakur stýrður sjálfvirkur fókus (AF-S); stöðugur sjálfvirkur fókus (AF-F). Handvirkur fókus (MF)
Live View - AF-svæðissniðAF-andlitsstilling, AF fyrir víð svæði, AF fyrir venjuleg svæði, AF-eltifókus
Sjálfvirkur fókusAF-birtuskilanemi hvar sem er í ramma (myndavél velur fókuspunkt sjálfkrafa þegar AF-andlitssnið eða AF-eltifókus er valinn)
Sjálfvirk umhverfisstillingTiltæk í sjálfvirkri stillingu og með slökkt á flassi
Upptaka hreyfimyndaSkráarsnið: MOV
Upptaka hreyfimyndaRammastærð/rammatíðni: 1920 × 1080, 24 r/sek.; 1280 × 720, 30 r/sek.
Upptaka hreyfimyndaMyndskeiðsþjöppun: H.264/MPEG-4, háþróuð kóðun hreyfimynda
Upptaka hreyfimyndaUpptökusnið hljóðs: Línulegt PCM
Upptaka hreyfimyndaHljóð: Einnar rásar hljóðnemi innbyggður. Hægt að hafa kveikt eða slökkt á.
Upptaka hreyfimyndaLjósmæling: TTL-ljósmæling með aðalmyndflögu
Skjár7,5 cm u.þ.b. 230.000 díla TFT LCD-skjár með birtustigsstillingum
MyndskoðunMyndskoðun á öllum skjánum; Spilun hreyfimynda; Myndskoðun með smámyndum (4, 9, eða 72 myndir eða dagatal); Skyggnusýning; Stuðlarit; Ljós svæði sýnd; Sjálfvirk skipting á milli mynda; Athugasemdir í mynd (allt að 36 stafir)
LagfæringD-lýsing, leiðrétting á rauðum augum, snyrting, svarthvítt, síuáhrif, litajafnvægi, lítil mynd, myndyfirlögn, NEF (RAW) vinnsla, fljótleg lagfæring, rétt af, bjögunarstýring, fiskaugalinsa, litaútlína, sjónarhornsstýring, smækkaðar myndir, hreyfimyndum breytt
USBHáhraða USB
HDMI-úttakHDMI-tengi, gerð C
AukabúnaðartengiTengisnúra: MC-DC2 (fáanleg sér); GPS-eining: GP-1 (fáanleg sér)
Tungumál í boðiDanska, enska, finnska, franska, gríska, hollenska, indónesíska, ítalska, japanska, kínverska (einfölduð og hefðbundin), kóreska, norska, pólska, portúgalska, rússneska, spænska, sænska, tékkneska, tyrkneska
RafhlaðaEin EN-EL14 Li-ion hleðslurafhlaða (fylgir með)
AC adapterEH-5a AC-straumbreytir; þarf að nota með EP-5A tengikubbi (fáanlegur sér)
Mál (B × H × Þ)U.þ.b. 124 × 96 × 74,5 mm
ÞyngdU.þ.b. 500 g með rafhlöðu og minniskorti en án loks á húsi
EndingHús og lokaraeining endast bæði upp undir um það bil 100.000 umferðir.
 
 

AN-DC3 ól

 

Axlaról úr ofnu efni með útsaumuðu myndmerki Nikon.

 
 
 

BF-1B lok á hús

 

Hægt að setja á myndavélarhús þegar engin linsa er fest á til að verja myndavélina gegn ryki og raka.

 
 
 

EN-EL14 rafhlaða

 

Lítil en afkastamikil og endingargóð Li-ion hleðslurafhlaða.

 
 
 

BS-1 hlíf fyrir tengiskó

 

Passar í tengiskó allra SLR-myndavéla frá Nikon og hjálpar til við verja tengiskóinn gegn ryki og raka.

 
 
 

ViewNX2

 

Allt í einum hugbúnaðarpakka. Getir þér kleift að flytja inn, flokka, breyta og deila myndum og myndskeiðum. Samhæft með Nikon Transfer. Samþætt við my Picturetown,

 
 
 

MH-24 hleðslutæki

 

MH-24 er notað til að hlaða Nikon EN-EL14 Li-ion hleðslurafhlöður.

 
 
 

DK-5

 

Við notkun sjálftakara eða fjarstýringar er ráðlagt að fjarlægja hlífðargúmmí leitarans og festa DK-5 augnglershettuna. Það mun koma í veg fyrir að ljós sem berst inn í leitarann trufli lýsingu í sjálfvirkum lýsingarstillingum.

 
 
 

DK-20

 

Augnglershlíf úr mjúku gúmmíi. Heldur ljósi frá leitaranum.

 
 
 

AS-15 flassmillistykki

 

>

 
 
 

MC-DC2 fjarstýringarsnúra

 

Fjarstýringu á afsmellara er hægt að nota til að smella af í ákveðnum gerðum Nikon-spegilmyndavéla án snertingar.

 
 
 

DR-6 hornréttur leitari

 

>

 
 
 

EH-5a straumbreytir

 

Straumbreytir veitir stöðugan straum í stað rafhlaðna.

 
 
 

AF-S DX NIKKOR 35mm f/1.8G

 

35 mm linsa með breiðu ljósopi og hágæðaljóstækni, fyrirferðarlítil og hönnuð til notkunar með Nikon myndavélum með DX-sniði.

 
 
 

EP-5A tengi fyrir straumbreyti

 

Með EH-5 straumbreyti og EP-5A tengi er hægt er að stinga myndavélinni í samband við rafmagnsinnstungu með því að stinga tenginu í rafhlöðuhólfið. Þetta á við stafrænar SLR-myndavélar sem nota EN-EL14 hleðslurafhlöður.

 
 
 

UC-E4 USB-snúra

 
 
 
 

Speedlight SB-400

 
 
 
 

CF-DC1 hálfstíf myndavélartaska

 
 
 
 

AF-S DX NIKKOR 55-300mm f/4.5-5.6G ED VR

 

Öflug aðdráttarlinsa. Með 5,5x aðdrætti, fjölhæfri 55-300 mm brennivídd og hröðum og hljóðlátum sjálfvirkum fókus.

 
 
 

GP-1 GPS tæki

 

Hægt er að tengja GPS-kerfi við tilteknar Nikon-myndavélar til að skrá nákvæma staðsetningu myndavélarinnar þegar mynd er tekin.

 
 
 

AF-S DX Micro NIKKOR 85mm f/3.5G ED VR

 

Lítil og létt makrólinsa á DX-sniði með 1:1 endurmyndunarhlutfalli, titringsjöfnun II og mjúkum og nákvæmum sjálfvirkum fókus.

 
 
 

DG-2 stækkunarleitari

 
 
 
 

EG-D2 AV-snúra

 

EG-D2 hljóð-/myndsnúran gerir þér kleift að tengja myndavélina þína við sjónvarpið, myndbandsspilara, DVD-spilara, o.s.frv.